Elsku drengurinn minn, nú er þjáningum þínum lokið og þú kominn í góðar hendur og hinn óendanlega frið. Ég kveð þig í dag með trega og söknuði. Hann Krisján frændi þinn Hreinsson samdi ljóðið Minningu sem mér finnst eiga vel við á þessari stundu. Guð geymi þig og varðveiti.