no image

Fylgja minningarsíðu

Steinar Antonsson

Fylgja minningarsíðu

10. júní 1936 - 15. desember 2025

Útför

Útför hefur farið fram.

Hlekkur á streymi
Þakkir

Þakkir til starfsfólks Landakots fyrir góða umönnun.

Blessuð sé minning Steinars

Steinar, frændi Skúla míns, er fallinn frá. "Steinar frændi" eins og við kölluðum hann alltaf. Hæglæti, yfirvegun og einhver ólýsanleg kyrrð fylgdi honum. Það var því ávallt notalegt að vera í návist hans.

no image

Bæta við leslista

Guð veri með þér

Elsku Steini minn, nú ertu farinn. 89 og hálfs árs.Þú varst baklandið mitt. Alltaf hægt að leita til þín, líta inn í smá stund. Það var svo gott að kynnast þér og víðáttunni kring um þig. Alveg eins og þegar ég leitaði um helgar á Fornhaga þegar ég var táningur.Ég kynntist þér ekki almennilega sem persónu fyrr en um miðjan 10 áratuginn. Eins og oft áður var Fornhagafjölskyldan mér góð. Ingi og Erla buðu mér í jólaboð á jóladag. Ég var einn. Ég held að ég hafi komið á hjólinu ínn í Fossvog. En ég fór með Steina í jeppanum heim.Og þar sem við vorum á Skúlagötunni,sá ég allt í einu hvað við áttum vel saman, fengum gott samband. Ég lít á þetta sem heilaga stund í samskiptum okkar. Því að eftir það varð Steini óaðskiljanlegur hluti af mínu lífi.Ég ýtti til hliðar fordómum og bak við þá leyndist þú minn góði vinur. Ég man hvað lyktin af peysunni þinni var góð, þegar við sátum saman á Vitatorgi og borðuðum. Yfirvegun og kyrrð. Það var svo gott að sjá þig eins og þú varst í raun og veru. Auðvitað varstu stálminnugur eins og allir vita. Og það var hægt að spyrja þig um fortíð okkar á Snæfellsnesi og um sögulegar staðreyndir utan úr hinni stóru veröld. Þú sagðir mér fra´konunni í Karlsruhe sem var allt í einu horfin af því hún stóð upp á fundi og andmælti SS böðlunum. Í Karlsruhe varst þú í námi í tvö ár. Og heyrðir þessa sögu frá konunni sem leigði þér. ÞÚ sagðir mér líka fra kynnum þínum af Hans Mann , þýskum gyðingi sem leitaði til Íslands í gyðingaofsóknunum og sem bar kolapoka til fólks. Honum hafðir þú kynnst þegar þú varst í Vatnsveitunni og varst í eftirliti í Norðurmýrinni. Hann sýndi þér helgirit Gyðinga.Ég var svo hrifinn af þessari sögu ,að næst fórum við í bíltúr og þú sýndir mér húsið hans í Karlagötunni.Ég er ekki jafn minnugur og þú en nú veit ég nákvæmlega hvar húsið hans Hans Mann er. Helgistaður fyrir mér.Ekki má gleyma hvað þú varst skynugur og góður við dýr. Og þú skynjaðir vel,hvað hundarnir á Seljalandi voru móðgaðir af því þér var bannað að taka þá með að ná í kýrnar.Og alltaf varstu þolinmóður við Lappa minn,þó hann sé ör og svolítið geltinn.Elsku Steini minn, svona voru milljón sögur sem þú sagðir mér.Kirkjuheimsóknirnar voru eitt. Ég hef aldrei verið sérlega hrifinn af kirkjum. En ég fór stundum með þér í Neskirkju. Og alltaf leið mér vel með þér þar.Ástæðan: Þú stóðst aldrei upp undir formsatriðum prestsins þó allir aðrir gerðu það. Og ég sat auðvitað líka.Tveir skrýtnir.Húmorinn þinn má ekki gleymast og gleymist mér náttúrulega aldrei. Því ég hló svo hjartanlega.Þið aðstandendur þekkið þetta. Í hægðum sínum sagði hann frá og síðan kom síðasta orðið og með svip sem þið þekkið. Þegar svipurinn birtist,sprakk sprengjan inn í mér .Það var þér áfall að fá aðkenningu að slagi í júni sl. Þú baðst mig örvæntingarfullur að taka þig heim af sjúkrahúsinu strax fyrstu vikurnar. Þú vissir auðvitað, að ef þú ílentist þar yrði leiðin bara ein.Fyrirgefðu að ég gat ekki komið til móts við þessa bæn þína. Og nú ertu farinn kæri vinur. Vertu ævinlega blessaður og Guð veri með þér í nýjum heimi. Þinn frændi, Einar Þorleifsson

no image

Bæta við leslista

Steini frændi

Minningarnar um Steina frænda, föðurbróður okkar, eru samofnar æskuárum okkar. Hann var alltaf hluti af samverustundum hjá ömmu og afa þar sem hann sá til þess að boðið væri upp á möndluköku eða ís ásamt hæfilegum skammti af stríðni og glensi.

Bæta við leslista