Við Raggi kynntumst á Menningarnótt 2003, hann var þá staddur á Kaffibarnum með bassann sinn, sem hann kunni svo sannarlega að spila á, ásamt vini sýnum og samstarfsfélaga Tomma White, þegar ég kom stökkvandi inn til að dansa. Tommi d.j-aði og Raggi spilaði með á bassann, eins og þeir gerðu svo oft.