Ólafur kvaddur
Ólafur Sveinsson fæddist í Gerði á Barðaströnd 28. júlí 1925. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt 4. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sveinn Ólafsson, f. 15.10. 1882, d. 2.6. 1950, og Ingveldur Jóhannesdóttir, f. 30.5. 1893, d. 18.7. 1966. Systkini Ólafs eru: Jóhannes Hjálmar (samfeðra), f. 9.5. 1902, Jón Ingivaldur, f. 16.6. 1915, Svava, f. 17.2. 1917, Ólafía Margrét, f. 6.9. 1926, og Hulda, f. 11.3. 1929, sem öll eru látin. Eftirlifandi systur Ólafs eru Klara, f. 21.7. 1922, og Valgerður, f. 10.11. 1931.