no image

Fylgja minningarsíðu

Magnús Kristinn Eyjólfsson

Fylgja minningarsíðu

16. júlí 1971 - 15. ágúst 2025

Útför

Útför hefur farið fram.

Elsku Maggi minn...

Elsku Maggi minn, ég mun aldrei skilja af hverju lífið tók þessa óvæntu stefnu. Svo mikið eftir og allir að blómstra. Lífið getur stundum verið svo hverfult, brothætt og tíminn sem við eigum eftir svo stuttur. Það var svo margt sem við áttum eftir að ræða, gera og skapa saman, tala nú ekki um hversu sárt það er að hugsa til þess að börnin mín missi af því að kynnast frænda sínum betur, þú sem varst svo spenntur að kynnast þeim þegar þau komu í heiminn. Þú varst mér mikilvægur, stóri bróðir minn og maður sem ég gat alltaf litið upp til eða leitað til. Ég man hvað ég var montin þegar þú komst í heimsókn eða passaðir mig þegar ég var lítil, svo montin að ég hræddi alla krakkana á leikvellinum sem voru að metast um stóra og sterka fjölskyldumeðlimi. Ég átti sko bróður sem var meistari í allskonar, meira að segja því sem ég gat ekki borið fram og vissi ekkert hvað var, en þú varst stærstur og sterkastur af þeim öllum. Það er svo erfitt að hugsa til þess að sjá þig ekki aftur, fá ekki símtalið í desember þar sem þú biður mig um smákökuuppskriftina sem ég sendi þér svo oft áður. Heyra þig ekki svæfa fólk í kringum þig þegar þú útskýrir nýjasta nördaáhugamálið eða heyra skrítna írsk/skoska hreiminn á enskunni þinn sem nánast enginn skildi. Þær eru ótrúlega margar og góðar sögurnar sem ég geymi með mér, röddin þín ómar í höfðinu á mér og knúsin þín geymi ég í hjartanu. Ég elska þig ávallt og sakna þín ætíð. Þangað til við hittumst næst elsku bróðir,

no image

Bæta við leslista