Kallið er komið
Elsku afi nù sit ég hér í fallegu íbúðinni minni og hugurinn reikar út á við. Það að hafa haft þig í mínu lífi í 43 ár og fá að kalla þig afa þó þú hafir ekki verið blóð afi minn var mér dýrmætt. Þegar ég varð eldri og vissi sannleikann breytti það engu. Þú varst alltaf afi í mínum augum. Þær voru ófáar stundirnar sem við eyddum saman í keflavík með ömmu Dóru. Þú varst svo lánsamur að fá hana inn í þitt líf. Ég man alltaf eftir því þegar ég kom til þín í Mosó, Brekkubyggð og síðan í fallegu íbúðina í Mörkinni. Þið elskuðuð mig alltaf eins og ég er. Þegar ég óx úr grasi rofnuðu tengslin í nokkur ár til þín en starfsfólkið á Kleppi aðstoðaði mig að finna símanúmerið þitt og þegar ég hringdi spjölluðum við lengi saman. Þú spurðir mig hvar ég væri og hvernig ég hefði það. Ég sagðist vera á Kleppi og vissi ekki hvenær ég losnaði þaðan og þú sagðir að það er gott að þú ert að fá þá aðstoð sem þú þarft elskan mín. Þú notaðir það orðalag svo oft til mín og mér þótti svo vænt um það. Mér er ætíð minnistætt þegar þið komuð í afmælið mitt á Byggðarenda og gáfuð mér fallega gjöf. Ég er líka svo þakklát fyrir það að þú og amma gátuð komið til mín þar sem ég bý núna í kaffisopa og köku. Ég er ævinlega þakklát fyrir að hafa náð að hitta þig á Grund nokkrum mánuðum fyrir andlát þitt. Hvíldu í friði elsku afi þar til við hittumst næst í sumarlandinu þegar ég fer yfir regn bogabrúnna á móts við almættið og þig.