no image

Fylgja minningarsíðu

Kolbrún Dóra Kristinsdóttir.

Fylgja minningarsíðu

16. júlí 1974 - 21. nóvember 2025

Andlátstilkynning

'Astkær eiginkona mín, móðir okkar, systir og mágkona, Kolbrún Dóra Kristinsdóttir lést í Bandaríkjunum föstudaginn 21 nóvember síðastliðinn.

Útför

5. janúar 2026 - kl. 15:00

Minningarathöfn fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju Mánudaginn 5 janúar kl 15:00

Aðstandendur

Þór Sigurðsson Kristinn Þórsson, Kamilla Þórsdóttir Sólrún K Kristinsdóttir, Aðalbjörn H Kristinsson Guðrún S Kristinsdóttir, Baldvin Einarsson og aðrir aðstandendur.

Þakkir

fjölskyldan þakkar fyrir hlýhug og fallegar kveðjur.

Yndislega Kolla🩷

Elsku fallega Kolla okkar, það sem við vorum heppin að fá þig í fjölskylduna. Ég hitti Kollu fyrst þegar hún vann með Stínu systir svo brosmild, gullfalleg og mig langaði strax að kynnast þessari konu. Stínu tókst að sannfæra hana að hitta Þórsa frænda, en hann er með nákvæmlega sömu einkenni, og svo bara smullu þau saman! Það sem við vorum stolt af frænda að ná sér í svona gorgeous og skemmtilega konu 🩷

no image

Bæta við leslista

Í minningu Kollu

Það var eitthvað alveg sérstakt við Kollu. Við systur minnumst hennar sem dásamlegrar stelpu sem var ljúf og góð við alla. Það voru forréttindi að alast upp í Hnífsdal, þar sem allir léku sér saman og gengu í litla barnaskólann. Á tímabili deildi árgangur Kollu kennslustofu með okkur, því þau voru aðeins fjögur í sínum árgangi.

no image

Bæta við leslista

Kolbrún Dóra - minningargrein

Elsku besta Kolla mín, trúi ekki að þú sért farin frá okkur svona ung. Mér finnst svo stutt síðan þú fæddist.

no image

Bæta við leslista

Í minningu Kollu

Kolla hefur alltaf átt sérstakan stað í hjarta mínu. Við vorum ekki í sama árgangi í barnaskólanum í Hnífsdal en þó að samband okkar hafi verið lítið eftir að skólagöngu í Hnífsdal lauk, á hún og heimili hennar alltaf sérstakan stað í hjarta mér og minnar fjölskyldu. Mamma minnist þess að Stína hafi tekið henni opnum örmum þegar við fluttum í Hnífsdal og þegar hún talar um Stínu sé ég söknuðeneinnig mikla gleði og kímni því þær gátu hlegið svo mikið saman og oft var hreinlega grátið af hlátri.

Bæta við leslista