no image

Fylgja minningarsíðu

Klara Hallgerður Haraldsdóttir

Fylgja minningarsíðu

17. maí 1933 - 13. október 2022

Andlátstilkynning

Ástkær móðir okkar, amma og langamma, Klara Hallgerður Haraldsdóttir, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi 13. október 2022. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Útför

Útför fer fram í kyrrþey.

Aðstandendur

Sigríður Helga, Elín Guðrún, makar þeirra börn og barnabörn.

Þakkir

Aðstandendur þakka hlýjar kveðjur og bera starfsfólki hjúkrunarheimilisins Lundar sérstakar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning og alúðlega umönnun undanfarin ár.

Kveðja til ömmu

Amma var engri lík. Húmoristi, hugsjónamanneskja, mannvinur, víðsýn, fordómalaus, hlý og hress eru allt orð sem lýsa henni vel. Hún var líka harður nagli, ævintýragjörn listakona, bóndi, bóhem og spákona. Hún var allskonar og hún var best. Hún kenndi mér margt, meðal annars að blóta og taka lífinu ekki of alvarlega. Hún var amman sem sagði hryllingsbrandara og var með hlýjasta faðminn. Blótaði auðvaldinu í sand og ösku og mátti ekkert aumt sjá.

Bæta við leslista