no image

Fylgja minningarsíðu

Jóna Björg Halldórsdóttir

Fylgja minningarsíðu

29. janúar 1974 - 4. júlí 2026

Útför

Útför fór fram í kyrrþey.

Sálmaskrá
Frá pabba og systkinum

Elsku Jóna okkar er farin. Það er óskiljanlegt og harm okkar er erfitt að setja í orð. Jóna okkar sem átti eftir að gera svo margt, hafði hæfileika í svo margar áttir en tapaði fyrir sínum versta óvin sem hún sótti þó svo í. Allt sem við ætluðum að gera saman, öll plönin sem sífellt var frestað, allar skemmtilegu hugmyndirnar og pælingarnar verða minningin ein. Við hugsum um allt sem við áttum með henni, hún er með okkur áfram í hugum okkar, við heyrum tilsvör hennar, hlátur og grát. Við söknum þín óskaplega elsku Jóna okkar, lífið er ekki samt án þín.

Bæta við leslista