Elsku vinur.
Elsku vinur það var mikið sjokk að heyra að þú hafir tekið flugið, því þegar ég heyrði í þér síðast í lok sept þá varstu glaður og hlakkaðir mikið til að fara og hitta stelpuna þína á Spáni þann 8 nóv og varst búin að kaupa farseðill þar sem læknar sögðu að allt liti vel út, en sú var raunin ekki þú veikist skyndilega aftur og varst farin þann 18 okt. Þakka þér fyrir heimsóknir þínar til mín í spjall og takk fyrir að bjóða mér og vinkonu minni í sumarbústaðinn þinn í veiði og var farið á bát og siglt um vatnið á fallegu kvöldi. Við spjölluðum mikið saman um lífið og dauðann og tilveruna, þú áttir tímabundið við andleg veikindi að glíma en varst komin á góðan stað síðast þegar við töluðum saman og varst fullur tilhlökkunar fyrir komandi framtíð. Þú varst mikill húmoristi og skellti ég marg oft uppúr þegar þú sagðir frá. Það var mitt ríkidæmi að fá þann heiður að kynnast þér og vil ég þakka fyrir þína vináttu í öll þessi ár er við þekkumst.