Elsku hjartans amma mín og nafna. Nærvera þín var alltaf svo góð og alltaf notalegt að koma til þín og afa Villa. Ég er þakklát fyrir okkar samverustundir í bakstri, að syngja með þér og dansa, fá að gista í ömmuholu og heyra sögurnar þínar, fá að máta skartgripi þína og hælaskó og þegar þú settir á mig rauðan varalit svo við værum í stíl.