no image

Fylgja minningarsíðu

Gísli Jónsson

Fylgja minningarsíðu

17. júní 1946 - 29. apríl 2026

Andlátstilkynning

Gísli Jónsson fæddist á Innri-Skeljabrekku þann 17. júní 1946. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 29. apríl 2026.

Útför

9. maí 2026 - kl. 13:00

Útför fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 9. maí kl: 13:00.

Aðstandendur

Eiginkona Gísla var Oddbjörg Leifsdóttir f. 1945 - d. 2021. Börn þeirra og tengdabörn: Jón Gíslason og Áslaug Guðný Jónssdóttir Áslaug Ella Gísladóttir og Arnar Hólmarsson Kristín Gísladóttir og Kristinn Óskar Sigmundsson Leifur Welding Guðfinna Gísladóttir og Pétur Bj.Guðmundsson Afabörn og langafabörn

Elsku besti afi,

Það er skrítið og erfitt að hugsa til þess að tíminn okkar saman sé liðinn. Að faðmlögin, símtölin og samtölin verði ekki fleiri. Þér var svo annt um fólkið þitt. Hafðir kannski ekki um það mörg orð en ástina fann maður í faðmlaginu, spurningunum og því hversu stoltur þú varst af okkur, afkomendum þínum. Þér var svo annt um að okkur vegnaði vel, ekki þannig að við værum á einhverri framabraut, heldur bara þannig að við hefðum ofan í okkur og á og gætum notið lífsins.

Bæta við leslista

Elsku tengdapabbi

Í dag kveðjum við kæran tengdaföður minn Gísla Jónsson, sem lést miðvikudaginn 29 apríl síðastliðinn.

Bæta við leslista