Elsku hjartans mamma mín, nú ertu farin í sumarlandið.
Elsku hjartans mamma mín, nú ertu farin í sumarlandið og ég er svo dofin að ég er ekki enn búin að átta mig á þessu. Í hvert skipti sem ég fer upp í Miðkot lít ég inn um stofugluggann og á von á því að sjá aftan á fallega gráa hnakkann þinn, þar sem þú sast iðulega í stólnum þínum og réðst krossgátur, varst í stafarugli í iPad eða horfðir á sjónvarpið.