Fylgja minningarsíðu
Drífa Hrönn Gunnlaugsdóttir
Fylgja minningarsíðu
14. mars 1971 - 3. maí 2025
Andlátstilkynning
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, Drífa Hrönn Gunnlaugsdóttir, lést á Landsspítalanum við Hringbraut 3. maí.
Útför
16. maí 2025 - kl. 13:00
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 16. mai klukkan 13.
Aðstandendur
Linda Elín Kjartansdóttir - Guðrún Ingadóttir Þyra Guðrúnar Lindudóttir Sölvi Reyr Magnússon Linda Helena Tryggvadóttir Rannveig Ásdís Gunnlaugsdóttir Haukur Tryggvi Gunnlaugsson
Drífa Hrönn Gunnlaugsdóttir
Þegar sonur minn kynnti okkur Drífu vorum við örugglega báðar feimnar og hikandi en það bráði fljótlega af okkur. Upp frá því vorum við nánar vinkonur fram til þessa dags þó að stundum liði langt á milli samfunda enda lengst af búsettar í sitthvorum landshlutanum. Drífa var sveitakona inn við beinið og naut þess mjög að taka þátt í sauðburði og réttum, bregða sér á hestbak og rölta um tún og móa. Við deildum líka miklum handverksáhuga og gátum talað saman um hvað sem var, hvort heldur það voru viðkvæm einkamál eða bara lífið og tilveran almennt.
Bæta við leslista
Minningar lifa.
Elsku Drífa mín, ég er bara alls ekki að trúa því að þetta sé raunverluleikinn að virkilega sé búið að höggva stórt skarð í okkar yndislega rótgróna vinahóp. Við höfum brallað ýmislegt í gegnum tíðina sem eru yndislegar minnigar sem er gott að ryfja upp og ylja sér við. Fyrsta vinkonan sem ég kynnist og þá bara smákrakkar þar sem mömmur okkar unnu saman og urðu vinkonur, síðan stækkaði hópurinn okkar og allar eigum við svo stóran part í hvor annarri. Þín verður alltaf minnst elsku Drífa, brosand og með svo smitandi hlátur og grallara svip.
Bæta við leslista
Dýrmætar minningar!
Innilega til hamingju með daginn þinn elsku vinkona <3 Það líður varla sá dagur að ég hugsa ekki til þín. Mikið sem við vorum búnar að bralla saman í gegnum árin, allt frá því við vorum litlar stelpur. Aðeins eitt hús á milli okkar og stutt að fara til að leika. Ég leit svo upp til þín, þú gerðir allt svo vel. Allt lék í höndunum á þér, hvort sem var að spila á hljóðfæri, litaðir fallega í litabækur, varst flínk að vinna með hár og gerðir ekki ósjaldan fasta fléttufléttur í mig og þegar við urðum eldri að mála okkur og gera okkur fínar. Svo kom tímabilið þar sem var töff að vera með fleiri en eitt gat í eyrað og ekkert mál fyrir þig að gera sjálf göt í eyrun með klaka við eyrað og nálin í gegn takk fyrir eins og ekkert væri en ég var ekki alveg eins hugrökk og lét bara götin duga sem var skotið í mig 9 ára gömul. Við fórum mikið í Hrossabitahagann á leynistaðinn okkar þar inn á milli trjánna og þar höfðum við komið fyrir ýmsum dýrgripum í boxi "sem að okkur fannst" t.d ál hringurinn af gos dósum og nælur ofl og grófum það niður og geymdum ásamt dulkóðuðum bréfum með leyndarmálum okkar. Já við fundum sko upp á ýmsum ævintýrum um dagana. Eftir skólskóla fórum við líka stundum heim og hlustuðum á BoneyM, Abba, Shakin Stevens eða Elvis hehe, já pínu öðruvísi músík hlustað á, á mínu heimili,..og sömdum dansa og sungum hástöfum með og þóttumst vera frægar söngkonur. Við gátum líka legið tímunum saman í herberginu mínu eða þínu og flett fræga Freemans pöntunarlistanum ásamt Quelle og fleiri listum. Bara skoðað og látið okkur dreyma, hvort sem voru föt eða húsgögn og sjá fyrir okkur hvernig við myndum innrétta okkar hús síðar meir og auðvitað var plata á fóninum hjá þér eins og alltaf, t.d Whitney Houston, U2, Steve Wonder eða Mezzoforte og mörg þessara laga urðu líka mín uppáhalds. Ég var á veitingastað um daginn á Tenerife og þar var söngkona sem tók ýmis lög og eitt lagið var með Whitney "I will always love you" sem snerti sko marga tilfinningastrengi og tárin runnu bara niður og ótal dýrmætar minningar komu upp,.... mikið sem ég sakna þín elsku vinkona. Við hefðum örugglega verið saman á Tene að fagna deginum þínum ef þú værir enn hjá okkur. Við ætluðum að fara að ferðast svo mikið meira saman. En ég er þakklát fyrir ferðirnar sem við fórum saman síðustu árin , bæði innan sem utan lands með hluta af vinkonuhópnum. Síðasta ferð okkar vinkvennanna var í Stykkishólminn í maí 2024 í dásemdar veðri, yndisleg helgi og þú ótrúlega brött þrátt fyrir að þá varstu verulega farin að finna fyrir veikindum þínum án þess að vita það þá hvaða verkefni beið þín næsta árið elsku vinkona, en þú barðist eins og hetja fram til síðasta dags. Takk fyrir öll árin elsku dýrmæta vinkona, þú verður alltaf í hjarta mínu ❤️
Bæta við leslista