Fylgja minningarsíðu
Björgvin Helgi Halldórsson
Fylgja minningarsíðu
16. apríl 1951 - 9. apríl 2026
Andlátstilkynning
Björgvin Helgi Halldórsson fæddist í Hafnarfirði 16. apríl 1951. Hann lést á heimili sínu 9. apríl 2026. Útför Björgvins fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 28. apríl 2026, kl. 15.
Útför
28. apríl 2026 - kl. 15:00
Útför Björgvins fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 28. apríl 2026, kl. 15.
Aðstandendur
Foreldrar Björgvins voru Halldór Baldvinsson, f. 10.8. 1921 og Sigríður Þorleifsdóttir, f. 10.6. 1921. Systkini Björgvins eru Baldvin, f. 3.1. 1944, Margrét, f. 25.7. 1945, d. 5.5. 2024, Helga, f. 19.5. 1952 og Oddur, f. 5.1. 1959. Eiginkona Björgvins er Ragnheiður Björk Reynisdóttir, f. 8.6. 1954. Börn þeirra eru Svala, f. 8.2. 1977 og Hrafn f. 29.8. 1979. Fyrir átti Björgvin Sigurð Þór, f. 21.7. 1971
Minningar, skrifaðar 16.04 og 23.04 2026.
Æskuvinur minn og fóstbróðir, Björgvin Halldórsson, hefði orðið 75 ára í dag, átt stórafmæli! En örlögin gripu í taumana og Björgvin varð bráðkvaddur á heimili sínu 9. apríl sl., réttri viku fyrir afmælið. Ég kynntist Björgvin suður í Hafnarfirði snemma á unglingsárum mínum. Ég var skilnaðarbarn, Haukur, faðir minn, kvæntist í annað sinn, góðri konu úr Hafnarfirði, Huldu Guðjónsdóttur. Þau bjuggu sér heimili að Hverfisgötu 52 í Hafnarfirði og þar var ég tíður gestur í skólafríum. Björgvin bjó á Álfaskeiði 40, skammt frá Hverfisgötu 52, Álfaskeiðið liggur samsíða Hverfisgötu, á hamrinum ofan við hana. "Kastalinn" hét sjoppa sem unglingarnir í hverfinu héngu í á kvöldin. Fræg er sagan þegar Björgvin "leiðrétti" vin sinn. Þetta var snemmsumars 1964, rétt áður en ég fór í sveitina. Ég bjó hjá pabba og mömmu á Háaleitisbraut 24 (til skýringar: ég kallaði þá báða pabba, Hauk föður minn og Guðfinn fósturföður minn, þann góða mann). Ég fékk stundum leyfi hjá Stefáni í Múlakaffi til að horfa á kansjónvarpið á kvöldin og eitt kvöldið komst ég í feitt, The Rolling Stones, uppáhaldsbadið mitt, síðan fyrr um veturinn, tóku eitt lag, Muddy Waters blúsinn "I just Wanna Make Love To you". Ég gat varla beðið eftir að hitta Björgvin og lýsa því sem ég hafði séð. Daginn eftir fór ég suður í Hafnarfjörð og eftir kvöldmatinn hjá Huldu kom ég flaumósa inn í Kastalann þar sem fyrir voru Björgvin, Dýri Guðmunds ofl. Óðamála og stamandi sagði ég "Sáuð þið Rolling Stones í Hollywood Palace, djöfull var hann flottur þessi Keith! Björgvin var skjótur til svars (eins og alltaf): "Óttar minn maður segir ekki KEIT heldur KÍÞ! Þetta atvik lýsir samskiptum okkar Björgvins ágætlega. Þrátt fyrir að ég væri árinu eldri, þá var hann alltaf foringinn. Hann var alltaf fljótur að átta sig á öllu og skarpari en ég. Við fórum oft saman í bíó hlustuðum á tónlist í herberginu hans í Álfaskeiðinu og ræddum um hljómsveitir. Ég stofnaði hljómsveitina Sonet með Jonna Ólafs (Jóni Ólafssyni) og Kalla Júll (Karli Júlíussyni) árið 1966. Eitt sinn veturinn ´66-´67 spiluðum við í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Björgvin kom auðvitað að hlusta á okkur og eftir ballið ámálgaði hann það við okkur að gerast söngvari hljómsveitarinnar, Jonna leist ekki nógu vel á það og skömmu síðar gekk Björgvin til liðs við Bendix í Hafnarfirði. Frami hans var skjótur enda hæfileikarnir miklir. Hann leysti af Jonna í Flowers tímabundið (Jónas R.) og Jonni átti ekki afturkvæmt í Flowers. Vorið 1969 varð mikil uppstokkun í tónlistarbransanum. Hljómar frá Keflavík hættu störfum og ég missti vinnuna, hafði starfað hjá Hljómum í ár, frá 1968. En fyrir ákveðna keðjuverkun sem fór í gang þarna um vorið, þá gekk ég til liðs við Pops. Þetta gekk þannig til að Gunnar og Rúnar, ásamt sögkonunni Shady Owens úr Hljómum, fengu til liðs við sig frægustu hljóðfæraleikarana úr Flowers, þá Gunnar Jökul Hákonarson og Karl Sighvatsson og stofnuðu Trúbrot. Björgvin, Jonni Sighvats (Sigurjón Sighvatsson) og Addi (Arnar Sigurbjörnsson) voru skildir eftir en dóu ekki ráðalausir. Þeir fengu til liðs við sig Birgi Hrafnsson úr Pops og Svein Larsson, fyrrum spilafélaga Jonna Sighvats úr Mods. Hljómsveitina kölluðu þeir Ævintýri og átti hún eftir að skáka Trúbrot við í vinsældum meðal unglinga. Þar með vantaði Pops gítarleikara í stað Birgis og ég var kallaður til. Björgvin hafði oft komið með mér til Keflavíkur að heimsækja Rúnar og á þeim árum sem í hönd fóru styrktust vinaböndin milli okkar þriggja. Tónlistarferill Björgvins á ofanverðri síðustu öld var glæsilegur. Við töluðum oft saman og hann leyfði vini sínum að fylgjast með öllu sem var í pípunum. Hann leyfði mér meira að segj að velja einn sálminn sem hann söng á fimmtu Íslandslagaplötuuni "'Í Kirkjum Landsins" árið 2000, á þúsund ára afmæli kristnitökunnar á Íslandi. Ég valdi fallegan sálm sem ég hef alltaf haldið upp á "Ó,faðir, gjör mig lítið ljós" eftir séra Matthías Jochumsson. Við Björgvin byrjuðum að veiða saman upp úr 1990. Fyrst í silungsvötnum í nágrenninu, einu sinni kom Oddur bróðir (Björgvins) með og veiddi einn fallegasta urriða sem ég hef séð úr Vifilstaðavatni. Um aldamótin slóst einn besti vinur okkar í veiðihópinn, Birgir Hrafnsson. Skömmu seinna tilkynnti foringinn okkur að hann væri búinn að stofna veiðifélag, "Top of the line", ég yrði ritarinn, Birgir Hrafnsson gjaldkeri og hann sjálfur formaður (sjá meðfylgjandi mynd). í hönd fóru skemmtileg ár. Í yfir tvo áratugi héldum við tryggð við veiðigyðjuna fórum víða, mest í laxveiði. Allra síðustu ár, eftir að menn komust á áttræðisaldurinn hefur heldur dregið úr veiðiskapnum en reglulega höfum við hist okkrum sinnum á ári, vinirnir og spjallað saman yfir hádegisverði. Okkur til mikillar ánægju hafa bæði Jonni Sighvats og Addi Sigurbjörns bæst í hópinn og gert hann enn skemmtilegri. Ég vona að við fjórir sem lifum Björgvin, munum halda hópinn áfram og heiðra þannig minningu hins fallna foringja. Að endingu vil ég votta innilega samúð mína eiginkonu Björgvins, Ragnheiði Reynisdóttur, börnum hans, Svölu og Krumma (Oddi Hrafni) og Sigurði syni hans og Þórunnar. Systkinum hans, þeim eldri, Baldvin og Margréti og þeim yngri Helgu og Oddi og barnabörnum og fændfólki. Guð blessi minningu Björgvins Halldórssonar og sefi sorgir syrgjenda.
Bæta við leslista