no image

Fylgja minningarsíðu

Ásthildur Thorsteinsson

Fylgja minningarsíðu

8. júní 1953 - 8. júní 2026

Andlátstilkynning

Ásthildur Thorsteinsson frá Hurðarbaki í Reykholtsdal lést á heimili sínu mánudaginn 8. júní.

Útför

25. júní 2026 - kl. 13:00

Útför fer fram frá Reykholtskirkju í Borgarfirði fimmtudaginn 25.júní kl. 13:00.

Aðstandendur

Gunnar Bjarnason f. 1953 Börn þeirra og tengdabörn: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir Dagbjört Gunnarsdóttir Pétur Gunnarsson og Ása Baldursdóttir Gunnar Gunnarsson og Elín Valgerður Gautadóttir Barnabörn: Hera Sól, Gunnur Rún, Maríus Máni, Marinó Bjarki, Kristján Guðni, Ásthildur Hallveig, Kolbeinn Kári, Ásbjörn Tumi, Hólmsteinn, Ada María, Gunnar Gauti og Aron Einar

Kveðja frá skólasystur

25.Júní 2026

no image

Bæta við leslista

Ásthildur

Hún Ásthildur okkar er dáin voru skilaboðin sem ég fékk og þá hvarflar hugurinn. Ásthildur var félagi okkar í Ullarselshópnum frá upphafi. Hún var handverkskona fram í fingurgóma, hugmyndarík og fjölhæf. Ásthildur var góður félagi, hvort heldur var í leik eða starfi. Hún var alltaf til í að vera með ef misgáfulegar reisur voru í boði sem og að taka ábyrgð á gæðamati eða stjórnarsetu. Ásthildur var virk kvenfélagskona sem lagði gott til hávaðalaust og sinnti líka störfum fyrir kvenfélagið sitt í SBK. Ullarselshópurinn Þakkar samfylgdina og vottar öllu hennar fólki samúð.

Bæta við leslista