no image

Fylgja minningarsíðu

Andri Páll Sveinsson

Fylgja minningarsíðu

20. ágúst 1932 - 30. júní 2023

Andlátstilkynning

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Andri Páll Sveinsson, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð þann 30. júní.

Útför

18. júlí 2023 - kl. 13:00

Jarðsett verður frá Glerárkirkju 18. Júlí kl. 13.

Aðstandendur

Guðrún Sigurðardóttir, Hólmdís Karlsdóttir, Karl Kristinsson, Sigríður Andradóttir, Sigfríð Andradóttir, Þorkell Cýrusson, Guðný Andradóttir, Þröstur Sigurðsson, Rúnar Helgi Andrason og Margrét Eiríksdóttir.

Þakkir

Fjölskyldan þakkar auðsýndan hlýhug og vináttu. Einnig vill hún færa starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð sérstakar þakkir fyrir einstaka umhyggju og umönnun.

Kveðja frá Sigfríð

Elsku pabbi nú ertu búinn að fá hvíldina, farinn að hitta fjölskyldu og vini sem á undan eru gengin. Ég sé þig í anda núna tjúttandi við systur þínar því þú naust þín á dansgólfinu. Ég man alltaf þegar ég fór með þér 15 – 16 ára gömul á spilavist sem þú stjórnaðir fyrir hönd Þingeyingarfélagsins í gamla Alþýðuhúsinu (Allinn) sem endaði á harmoniku balli og hvað það var gaman að fara þarna með þér.

no image

Bæta við leslista

Kveðja til pabba
no image

Bæta við leslista

Kveðjur frá Kela

Tengdapabbi, Andri Páll Sveinsson, er fallinn frá.

Bæta við leslista